Vetrarfjallamennska 1
Grunnnámskeið fyrir þá sem vilja ganga á fjöll að vetri.
Fyrri daginn æfum við göngu á broddum, ísaxarbremsu og að ferðast í línu. Seinni daginn göngum við á tind og nýtum allt sem við lærðum.
Engrar reynslu af vetrarferðum er krafist, en þú þarft að geta gengið með bakpoka í sex til átta tíma.
Þetta þarftu að hafa með
Stífir gönguskór sem taka brodda.
Skel, hlý millilög, tvennir vettlingar og húfa.
Bakpoki, 30–40 lítra.
Broddar, ísöxi, belti og hjálmur eru innifalin.