← Öll námskeið

Fyrir alla Fjallamennska

Rötun og kortalestur

Lærðu að rata með korti, áttavita og GPS þegar skyggnið hverfur.

Við byrjum inni á því að lesa hæðarlínur og skipuleggja leið. Eftir hádegi förum við út og hver og einn leiðir hópinn milli punkta sem ekki sjást úr fjarlægð.

Námskeiðið hentar öllum sem ganga á fjöll og vilja hætta að treysta eingöngu á símann.

Þetta þarftu að hafa með

Gönguskór og hlý föt.
Áttaviti, ef þú átt. Við lánum þeim sem vantar.
Nesti og heitt á brúsa.

Önnur námskeið

Öll námskeið →