Um skólann

Við kennum það sem við notum sjálf á fjöllum

Hnúkur er lítill fjallaskóli í Reykjavík. Við höldum um fjörutíu námskeið á ári, frá rötun í Heiðmörk til sprungubjörgunar á jökli.

Skólinn varð til árið 2014 þegar þrír fjallaleiðsögumenn ákváðu að kenna það sem þeir sáu að vantaði oftast: að lesa landið, veðrið og snjóinn og taka réttar ákvarðanir í tæka tíð.

Öll námskeið eru byggð upp á sama hátt. Stutt yfirferð inni, síðan út þar sem hver og einn fær að æfa sig undir leiðsögn. Hóparnir eru litlir og enginn fer heim án þess að hafa prófað sjálfur.

Búnaður

Tæknibúnað á borð við línur, ísaxir, brodda og snjóflóðaýla leggjum við til. Þú kemur með hlý föt, góða skó og nesti.

Kennararnir

Allir leiðbeinendur okkar starfa sem fjallaleiðsögumenn eða í björgunarsveit og kenna aðeins það sem þeir vinna við sjálfir.

Ertu ekki viss hvaða námskeið hentar?

Sendu okkur línu eða hringdu. Við svörum alla virka daga.

hnukur@example.is 555 0142