Spurt og svarað

Það sem flestir spyrja um áður en þeir skrá sig.

Hvernig skrái ég mig?

Þú velur námskeið í listanum og smellir á „Skrá mig“. Þá ferðu beint í greiðslu og sætið er þitt þegar hún er komin í gegn. Staðfesting berst í tölvupósti.

Get ég afbókað?

Já. Ef þú afbókar sjö dögum fyrir námskeið eða fyrr færðu endurgreitt að fullu. Eftir það geturðu fært þig á annað námskeið eða gefið öðrum sætið þitt.

Hvað ef veðrið er vont?

Við kennum í flestum veðrum, það er hluti af náminu. Ef veður er hættulegt færum við námskeiðið á varadag, sem er oftast helgina á eftir. Komist þú ekki þá færðu endurgreitt.

Þarf ég að eiga búnað?

Tæknibúnað eins og brodda, ísaxir, belti, hjálma og snjóflóðaýla leggjum við til. Þú þarft hlý föt, góða skó og nesti. Nákvæmur listi er á síðu hvers námskeiðs.

Styrkir stéttarfélagið mitt námskeiðið?

Mörg stéttarfélög styrkja námskeið hjá okkur úr fræðslusjóði. Kvittunin sem þú færð í tölvupósti dugar oftast sem fylgiskjal með umsókn.

Ertu ekki viss hvaða námskeið hentar?

Sendu okkur línu eða hringdu. Við svörum alla virka daga.

hnukur@example.is 555 0142