Snjóflóð: mat og félagabjörgun
Hvernig á að lesa snjóflóðaspá, velja leið og bregðast við ef félagi grefst í flóði.
Morgunninn fer í snjóalög og leiðarval. Eftir hádegi æfum við leit með ýli, stöng og skóflu þar til allir finna grafinn ýli á innan við fimm mínútum.
Þetta þarftu að hafa með
Hlý vetrarföt og gönguskór eða fjallaskíði.
Snjóflóðaýlir, stöng og skófla, ef þú átt. Við lánum þeim sem vantar.
Nesti og heitt á brúsa.